Endurskoðun

Sturla Jónsson

Fastland í samstarfi við Birtu endurskoðun slf bíður upp á fulla endurskoðun fyrir þau fyrirtæki sem þess óska eða þurfa.

Sturla Jónsson er löggiltur endurskoðandi og hefur áralanga reynslu af endurskoðun og uppgjörum fyrirtækja.

Lesið meira

Sturla Jónsson – Endurskoðandi

  • Sturla kláraði viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1977.
  • Stundaði framhaldsnám í reikningshaldi og skattarétti við Handelshøjskolen i København 1978 – 1981 og hlaut löggildingu í endurskoðun árið 1984.
  • Sturla starfaði hjá Endurskoðunarskrifstofu Björns Steffensen & Ara Ó. Thorlacius 1976-1977 og hjá Skattrannsóknarstjóra 1977-1978.
  • Hann starfaði hjá Centralanstalten for Revision í Danmörku 1979-1981, samstarfsaðila Arthur Young.
  • Starfaði há Endurskoðunarmiðstöð N.Mancher hf 1981-1985, samstarfsaðila Coopers & Lybrand.
  • Hann starfaði hjá og var einn eigenda Endurskoðunar og reikningsskila hf frá 1985 – 2020 í samstarfi við Arthur Young sem síðar varð Ernst & Young frá 1987 – 1991 og svo Inpact International Ltd frá 1998 – 2020.
  • Sat í endurskoðunarnefnd FLE um árabil og sat einnig í stjórn FLE um tíma.
  • Sturla er nú einn af eigendum Birtu endurskoðunar slf. sem er í samstarfi við Fastland ehf.

Ef þitt félag þarf fulla endurskoðun eða ef þú tekur þátt í útboði eða rammasamning hjá opinberum aðilum þá færð þú alla þá þjónustu sem til þarf hér hjá okkur.