Hvað er virðisaukaskattur?
- Innskattur er virðisaukaskattur af þeim kostnaði sem við greiðum til að afla tekna.
- Útskattur er virðisaukaskattsprósentan sem leggst ofan á sölu.
- Virðisaukaskattur = útskattur – innskattur
- Skattþrep virðisaukaskatts eru tvö, 24% og 11%.
Hjá okkur starfar reynslumikið starfsfólk sem býr yfir þekkingu á virðisaukaskatti og öllum kúnstum hans.
Velta undanþegin virðisaukaskatti
Ekki er öll velta virðisaukaskattskyld. Samkvæmt 12 gr. laga um virðisaukaskatt 50/1988 má finna hvaða velta er undanþegin og í 2. grein sömu laga er fjallað um starfsemi sem er undanþegin virðisaukaskatti.
Hjá okkur starfar reynslumikið starfsfólk sem býr yfir þekkingu á virðisaukaskatti og öllum reglugerðum og vinnureglum skattyfirvalda.
Virðisaukaskattskil
Uppgjör virðisaukaskatts eru gerð á tveggja mánaða fresti fyrir tvo mánuði í senn, hjá þeim rekstraraðilum sem hafa meira en 4 milljónir í ársveltu. Virðisaukaskattstímabilin eru janúar/febrúar, mars/apríl, maí/júní, júlí/ágúst, september/október og nóvember/desember.
Hjá þeim rekstraraðilum sem eru með lægri ársveltu en 4 milljónir er virðisaukaskattsuppgjörið eitt ár og er eindagi þess 5. febrúar fyrir árið á undan.
